Ferill 777. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1176 — 777. mál.
Fyrirspurn
til forseta Alþingis um gervigreind.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hefur forseti Alþingis látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum Alþingis, hjá skrifstofu Alþingis og stofnunum Alþingis, umboðsmanni Alþingis og Ríkisendurskoðun?
2. Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum hjá Alþingi, skrifstofu Alþingis og hjá stofnunum Alþingis?
3. Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstaka málefnasviðum hjá Alþingi, skrifstofu Alþingis og hjá stofnunum Alþingis?
Skriflegt svar óskast.